*We're just two lost souls, Swimming in a fish bowl*
Tékkitát
18.12.2006 15:46:33 / elin

...

Pabbi: Elín, ertu viss um að þú treystir þér í að keyra út úr bílastæðahúsinu?

Ég: Jaaaá já, eigum við ekki bara að prófa.

Pabbi: uhh, þetta er nú jeppinn og mannstu að fyrir ári síðan varstu hrædd við hringtorg!!

 

 



Mamma: Æj, en leiðinlegt hvað kom fyrir hausinn á þessum strák.

Hrafn: Ha? Varð hann sköllóttur?

Mamma: Nei, hann klipptist reyndar bara óvart út af jólakortinu okkar.


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.12.2006 14:06:35 / sólveig

Schnilld!!

Smá jólagleði beint í æð fyrir ykkur elskurnar mínar:D

Svo býst ég fastlega við því að setja inn myndir bráðum frá því, maður var brúnn og sætur, í sumar;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.12.2006 00:10:06 / elin

Draugaganga.

Þessu síðasta kvöldi nóvembers eyddi ég í draugagöngu um miðbæinn. Ég fræddist heilmikið um hina framliðnu sem sveima um borgina án þess að nokkur verði þeirra var að undanskildnum miðlum og líknar"belgningum". Þeir sem hafa fæðst í líknarbelg, eins og pabbi minn,  eiga nefnilega að fá hroll í hvert sinn sem vofa er í nánd. Leiðsögumaðurinn upplýsti okkur einnig um það að um allan heim væri að finna nornir. Fyrir ári síðan komu tvær þeirra í gönguna hans og eftir að þau öll voru orðin vel ölvuð af viskíi trúðu þær honum fyrir því að tilgangur þeirra með komunni til landsins væri sá að safna mosa af leiði ákveðinnar konu sem grafin var í kirkjugarðinum við Hringbraut. Þær ætluðu síðan að nota hann sem hráefni í töfraseyði. Af tilviljun var ég einmitt spurð í dag af Eydísi frönskukennara hvort ég hefði einhvern tímann búið til töfradrykk. Ég svaraði því neitandi en nú veit ég þó hvert ég get farið ef mig vantar hráefni í einn slíkann. Hver veit nema ástar- eða óvinaseyði geti komið að góðum notum. Ég gæti jafnvel nælt í draumaprinsinn hann Mr. Prosnan, tíhí.

» 2 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 19:21:32 / elin

Superman vs. Catwoman

Nú er ég komin í andlega súperman-búninginn minn því ég ætla að massa þessa próftörn. Sólveig verður Kattakonan, ekki Súperman, og það án nærbuxna!

» 6 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 22:49:33 / elin

Marry me Sufjan Stevens.

Tónlistarkonan St. Vincent hefði ekki getað orðað hugsanir mínar betur á síðasta föstudagskvöld. Alveg hreint magnaðir tónleikar! Tónleikafélagar mínir voru partýhaldararnir miklu, Ingibjörg og Bjarni, sem héldu upp á afmæli sín kvöldið eftir. Þar var hörkustuð og held ég að síðustu gestirnir hafi farið heim til sín um tíu leytið. Það var þó ekki sökum ofsagleði heldur ofsaveðurs. Sjálf var ég einn og hálfan tíma að keyra heim úr Hafnarfirðunum vegna fjölda fólks sem ég þurfti að skila af mér og svo tók ég líka upp ráfandi puttaling. Hann var ótrúlega leiðinlegur - setjandi út á aksturinn minn alla leiðina! Ég veit ég er ekki besti ökumaður í heimi en hann mátti nú alveg halda sér saman og sína smá þakklæti.

Allir á mínu heimili fá í skóinn á Þorláksmessu sama hvað þeir eru gamlir. Kertasníkir er mjög gjafmildur en þó afskaplega óhugmyndaríkur og fá allir bækur sem þeir sökkva sér svo í á Aðfangadag. Ef svo vildi til að kertasníkir læsi þetta blogg er ég mest til í að fá Sendiherrann eftir Braga Ólafsson. Var nefnilega að klára bókina Samkvæmisleiki eftir sama höfund sem var frábær. Bragi er líka kúl sykurmoli!


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.11.2006 17:36:43 / elin

Liðleiki hefur takmörk.

Ég held að jógakennarinn minn haldi að liðleiki hafi engin takmörk. Í tímanum í gær lagðist hann ofan á mig í einni teygjunni og áts, ég hélt sko að ég myndi slitna! Ég skil ekkert í þessum asísku fimleikagúrúum sem virðast hafa engin liðamót.

» 5 hafa sagt sína skoðun

06.11.2006 13:29:21 / sólveig

Svar

Þar sem að ég gat ekki skrifað komment við þína síðustu færslu...pottþétt tölvan sem er eitthvað treg, ekki ég;) En já....hér er kemur kommentið:

Jámm..að beila á bakkusi er góð góð pæling og tókst mér það núna um helgina!! Fyrsta rólega helgin síðan hva...eftir vorpróf?!? En hmm...er samt á því að þú komir með mér á ´85 ballið;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.11.2006 23:33:51 / elin

Sundvandamál.

Ég fer í sund að meðaltali tvisvar í viku og þá að sjálfsögðu í Vesturbæjarlaugina. Ef maður ætlar sér að synda verður maður að plana vel hvaða tími er bestur. Morgnarnir eru alveg út því þá eru allar brautir pakkaðar af hægfara gamalmennum. Eftir hádegi á virkum dögum eru sundnámskeið fyrir grunnskólanema. Um kvöldmatarleytið er kvöldmatur. Eftir kvöldmat til lokunar eru svo oft hin ýmsu námskeið hjá fólki sem æfir sund eða sundhópar sem hittast. Helgar eru skárri þó ekki fyrr en eftir hádegi því gamla fólkið fær sér þá sitt morgunsund. Algjörlega vonlaust! Var þó að frétta að hugmyndir væru uppi um byggingu innilaugar.. *gleði*

 

Ef maður gæfi upp áfengisdrykkju myndi maður spara mikinn pening, græða tíma sem annars færi í þynnku og hlífa sér við því að gera einhvern asnaskap fullur (sem ég er einkar lagin við). Er að pæla í að beila á bakkusnum.

 

Ég er að fíla vonda veðrið. Kannski bara af því ég er búin að vera að hanga inni í kósýheitum í dag og í gær. Sjáum samt til hvað ég verð hress með það í fyrramálið þegar ég rölti í skólann.


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.10.2006 21:37:37 / elin

Ronja - Airwaves - Útlitsdýrkun

       Fjölskyldulíf mitt hefur verið með ansi skemmtilegu móti upp á síðkastið. Kvennkynshluti hennar (mínus ég) fór nefnilega í leikhús á sunnudaginn á Ronju ræningjadóttur og síðan þá hafa allir fengið ný nöfn. Þóra heitir núna Ronja, pabbi Matthías, mamma Lovísa og systkini mín eru ræningjar. Vegna þess hvað ég er lítið heima við fékk ég ekkert nema afgangshlutverk, þ.e. að vera grádvergur. Þeir sem þekkja til sögunnar vita að það er alltaf glens og gaman í Matthíasarborg og er Ægisíðan engin undantekning. Við höfum þó ekki tekið upp alla siði þeirra ræningja eins og að baða okkur einu sinni á ári á hinum merka þvottadegi.

 

       Airwaves var síðan um síðustu helgi. Ofur hátíð þar á ferð. Fannst mér fimmtudagskvöldið standa upp úr en þá sá ég: Mates of State, Hot Club de Paris, Eberg, Data Rock og The Whitest Boy Alive. Ég var síðan síður en svo fyrir vonbrigðum með Wolf Parade, þeir voru æði þrátt fyrir mikinn troðning. Patrick Watson var einnig góður á laugardeginum. Er strax farin að hlakka til Airwaves ’07.

        Er að horfa á America’s next top model sem stendur. Mér finnst nú gengið svolítið langt í útlitsdýrkun þegar þær eru farnar að rífa úr sér tennurnar til að eiga meiri möguleika á sigri. Segi ég sem eyddi þremur árum með munninn fullan af járndrasli.


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 17:31:31 / sólveig

Skólinn vs. Airwaves

Eins og kom fram í mínu síðastliðna en örstutta bloggi þá er árshátíðin yfirstaðin en núna er vetrarfríið líka búið:( En þetta bæði fór fram úr væntingum svo ég get ekkert kvartað!!

Árshátíðardagurinn var alveg frábær, byrjaði á morgunpartýi hjá mér!! Fyrsta partýið sem ég hef haldið síðan einhvern tíma í 7. bekk og það bara heppnaðist vel...engin hefur kvartað yfir því að hafa leiðst í því...allavega ekki ennþá;) En hver getur svo sem kvartað yfir morgunpartýi sem hefur allt milli geggjað morgunverðarhlaðborðs og ælu inná klósetti;) Svo komu Urður og Heiða gjellur með meiru til mín og  við tókum okkur til og urðum pínulítið "hressar" saman;) Þá var maturinn sem var nú alveg svona semí bara en jújú alltaf gaman að fara út að borða með félögunum, sérstaklega ef það eru líka sniðug skemmtiatriði þó misjöfn hafi verið. En svo var fyrirpartýið hjá honum Óla okkar:D Og það var náttúrulega bara geggjað eins og fyrirpartýjum sæmir. Mundi samt segja að þetta hafi nú bara verið með þeim skemmtilegri enda allt fólkið þar hvert öðru skemmtilegra:D Svo var ballið sjálft mjög skemmtilegt samt bara svona eins og böll eru flest, held að ég sé bara frekar farin að fíla minni partý og svo bara djammið þar sem hægt er að dansa án þess að vera í svona kreisíness troðningi og muna ekki neitt eftir að hafa verið að hella sig blindblekaða eins hratt og maður getur:S;) 
Á föstudegi var svo tjiiiiiillað, reyndar ekki samt...þar sem að maður vaknaði í það að þurfa að taka niður skreytingar í sinni ástkærustu Cösu;)
Á laugardagskvöldinu var svo partý hjá henni Sigrúnu skvísu og það var náttúrulega bara frábært reyndar tókst mér að beila á ýmsum sem að biðu mín í bænum, sorry Berglind og Halla Tinna (hitti ykkur pottþétt næst!!!!!). Held samt að í því ástandi sem ég var hefði ekki verið neitt mjög sniðugt að fara í bæinn:S;)

En já núna tekur bara við skólinn, og ég þarf svo þokkalega, illilega að taka mig á en það verður helvíti erfitt þar sem Airwaves er núna í þessari viku og júúú...ef það er eitthvað sem maður tekur fram yfir skólann þá er það tónlist, góð tónlist og svo náttúrulega svefn. En það er þess vegna sem ég sit hérna á þjóðarbókhlöðunni og er að blogga þetta....það er vegna þess að þetta er eini dagurinn sem ég mun almennilega komast til þess að læra og þá náttúrlega drullar maður sér hingað en neinei...sefur bara og bloggar svo viðurstyggilega langt blogg sem að engin heilvita maður mun nokkurn tíma nenna að lesa;)

En svona fyrir áhugasama og svo þú vitir hvert við munum halda Berglind, þá eru þetta það sem ég mun sækja á Airwaves:

MIÐVIKUDAGUR:
-Gaukurinn
1930 Led by a lion
2015 Cynic Guru
2100 The Telepathetics
2145 Noise
2230 We Are Scientists
2330 Dikta
0015 Númer Núll

FIMMTUDAGUR
-Gaukurinn
2000 The Foghorns
2045 Skakkamanage
2130 My Summer As A Salvation Soldier
2215 Eberg
2300 Datarock
0000 The Whitest Boy Alive

FÖSTUDAGUR
-Listasafnið
2000 Baggalútur
2045 Benni Hemm Hemm
2150 Islands
2215 Apparat Organ Quartet
2300 Jakobínarína
0000 The Go! Team

LAUGARDAGUR
-Nasa
2000 Wulfgang
2045 Úlpa
2130 Walter Meego
2215 Benny Crespo´s Gang
2300 Fields
0000 Brasilian Girls
0100 Hermigervill
0145 Dr. Mister & Mr. Handsome

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.10.2006 22:35:26 / sólveig

árshátíðin

Þá er árshátíðin búin og maður officially komin í vetrarfrí..jeijjj...;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.10.2006 02:27:51 / sólveig

alveg að koma að því:D

Þá er alveg að fara að koma að því...að árshátíð okkar mr-inga sé:D:D og núna var ég bara að setjast niður eftir nokkurra klukkustunda tiltekt!! Bæði heima og sjálfa mig eitthvað:P Gerði nú allt of lítið fyrir sjálfa mig að mínu mati;) en það er samt yndislegt að geta verslað og tekið til á heimilinu fyrir bekkinn sinn...þau eru svo mikil æði!! En jámm og jájá...ég er sem sagt með morgunpartý í fyrramálið og ætti náttúrulega að vera löngu farin að sofa fegurðarsvefni fyrir morgundaginn en neinei...ég er búin að vera að þrífa:D:D Jeijj...en annars þá er bara að rætast úr þessu held ég. Tilhlökkunin reyndar ekkert farin að sýna sig en ég held samt að dagurinn verið alveg ágætur:) Var m.a.s að hugsa um að beila á þessu öllu saman:S Átti engin föt og engan pening en einhvern vegin hefur þetta reddast:D og ég eftir allt saman að fara í matinn og allt...veit reyndar ekki hvað ég var að pæla með það en ætli maður verði ekki að gera sitt besta til að vera ekki félagsskítur;)
Anyways það verður feitast dansað og notið lífsins á morgun þannig að...;):*


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.10.2006 23:38:35 / sólveig

Þá hefur maður loksins tíma til þess að setjast við tölvuna í smá rólegheitum. Æjjj..nei...helvítis það er líffræðipróf á morgun...hmm...maður ætti kannski að fara að læra smávegis undir það...njaaa...neinei. Annars er ég bara búin að vera upp í skóla að skreyta og skreyta, gaman gaman:D:D MR algjörlega orðin annað heimilið mitt...eða eiginlega bara heimilið mitt því að klukkustundirnar sem ég eyði þar eru örugglega tvöfalt fleiri en tímarnir sem ég eyði heim:S Veit ekki alveg hvort það er jákvætt eða neikvætt;)

En allavega jáá...árshátíðin okkar er á næsta leiti og það verður geeeeeggjað:D:D:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7